Upphitun Tyrkland – ÍslandUPPHITUN Hvað er í gangi? A-landslið karla, undankeppni EM 2016 10. og síðasti leikurinn í A-riðli Tyrkland – Ísland 13. október 2015, kl. 18:45 Völlur: Konya Büyükşehir Torku Arena Nýr völlur, var opnaður í september 2014. Tekur 42. 276 manns í sæti. Er heimavöllur Konyaspor sem spilar í tyrknesku Süper Lig, efstu deildinni. Tyrkneska landsliðið hefur spilað síðustu tvo landsleiki á þessum velli eftir að hafa áður spilað í Istanbúl.
Síðasta sumar færði hann sig svo yfir til Svíþjóðar og hefur verið að spila með Hammarby síðan í júlí. Hann varð strax aðalmarkvörður liðsins og hefur spilað 12 leiki í sænsku deildinni. Í þeim hefur hann fengið á sig 12 mörk. Hann hefur haldið hreinu í helming leikjanna, 6 talsins. Þar af síðustu þremur. Hann hefur spilað 4 A-landsleiki, 1 U21-leik og 2 U19-leiki. Líkt og Gulli á hann ennþá eftir að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Þetta er sjálfsagt ekki auðveld ákvörðun fyrir þjálfarana. Gunnleifur er reynslumikill leiðtogi sem eldist eins og rándýrasta rauðvín en Ögmundur er sprækur og efnilegur framtíðarmarkmaður.
Þar á meðal er markmaður liðsins, Volkan Babacan. Hann spilaði áður með Fenerbahce og Manisaspor en spilar núna með Istanbul Basaksehir. Hann spilaði ekki fyrstu tvo leikina, gegn Íslendingum og Tékkum, en hefur staðið vaktina síðan þá. Hann hefur varið 22 skot í keppninni og aðeins fengið á sig 4 mörk. Hann hefur flott viðbrögð og er góður í að verja skot af stuttu færi auk þess að vera fínn vítabani (vonum að Gylfi sé búinn að æfa vítin sérstaklega). Markahæsti leikmaður liðsins er Burak Yilmaz.
Аргентина - Саудовская Аравия, 22 ноября 2022 - Okko Спорт
Allir sem ekki komast þangað eru beðnir um að flagga bláa litnum þar sem þeir geta, standa upp og syngja og hvetja liðið. Jafnvel þótt fólk sé bara eitt heima hjá sér. Áfram Ísland! Tyrkland Stjóri: Fatih Terim, a. k. a. İmparator (keisari) Terim er 62 ára gamall og reynslumikill þjálfari. Á árunum 1969-1985 spilaði hann rúmlega 400 leiki hjá Adana Demirspor og Galatasaray auk þess að spila 51 landsleik fyrir Tyrkland frá 1975 til 1985. Terim var varnarmaður og spilaði oftast sem sweeper. Hann þótti hafa mikinn og góðan leikskilning sem leikmaður og var einnig mikill leiðtogi á vellinum, hann endaði sem fyrirliði bæði hjá Galatasaray og landsliðinu. Hjá landsliðinu var hann fyrirliði í 32 leikjum af 51.
Sá spilar einnig í Tyrklandi. Hann hefur, líkt og Babacan, spilað bæði með Fenerbahce og Manisaspor en auk þess spilað með Besiktas, Trabzonspor og fleiri. Frá 2012 hefur hann spilað með Galatasaray þar sem hann hefur skorað 74 mörk í 124 leikjum. Fyrir landsliðið hefur hann spilað 42 leiki og skorað 19 mörk. 6 af þessum leikjum hafa komið í undankeppninni og 4 mörk hefur hann skorað þar.
Tékkarnir fara til Hollands þar sem Hollendingar þurfa sigur til að geta skákað Tyrkjum í baráttunni um umspilssætið. Í öðru lagi er þetta tækifæri strákanna til að svara fyrir seinni hálfleikinn gegn Lettum og sýna úr hverju þeir eru gerðir. Jafnframt því að enda á góðum nótum til að taka jákvætt mómentum með sér í næstu verkefni. Það verður fámennt en góðmennt af Tólfum sem ætlar að mæta á völlinn í Tyrklandi og gera sitt besta til að gefa strákunum sýni- og heyranlegan stuðning. Fyrir þá sem eru eftir á Íslandi þá ætlum við að fylla Ölver af bláum treyjum, stuði og stemningu.
Hann hefur líka gaman af að henda sér í tæklingar en ekki alltaf með góðum árangri. Þannig missti hann af fyrri leik Tyrklands við Holland vegna þess að hann fékk 3 gul spjöld í fyrstu 4 leikjunum. Hann bætti það upp með því að skora í seinni leiknum við Holland en hann hefur skorað 2 mörk og gefið 3 stoðsendingar í undankeppninni. Annar sem vert er að minnast á er Hakan Çalhanoğlu. Þessi 21 árs gamli leikmaður náði einhvern veginn að afreka það að koma sér í tyrkneska landsliðið án þess að eiga einn einasta leik að baki fyrir Manisaspor.
Tyrkir töpuðu hins vegar öllum sínum leikjum og enduðu í neðsta sæti riðilsins. Fyrir HM ‘90 lentu löndin aftur saman í riðli í undankeppninni. Aftur voru Sovétríkin með í riðlinum en ásamt þeim voru Austurríki og Austur-Þýskaland í riðlinum. Fyrri leikurinn var spilaður 12. október 1988 á Besiktas Inonu Stadyumu í Istanbúl. 25. 680 áhorfendur mættu á völlinn í það skiptið.
Á 11 árum sínum sem leikmaður Galatasaray náði hann 3 sinnum að vinna tyrkneska bikarinn með liðinu en aldrei deildina. Hann átti það til að lauma inn einu og einu marki en ekki urðu þau mjög mörg samt. Hann skoraði 2 mörk með landsliðinu. Annað þeirra kom einmitt gegn Íslendingum í leik sem Tyrkir töpuðu 1-3 á heimavelli í september 1980. Sem þjálfari sneri hann aftur til Galatasaray árið 1996 og í það skiptið náði hann að vinna tyrknesku deildina með liðinu. Ekki bara einu sinni heldur fjórum sinnum í röð. Auk þess vann liðið líka tyrkneska bikarinn ‘99 og 2000 og þar að auki varð liðið UEFA Cup meistari árið 2000.
september 1980 fyrir framan 18. 506 áhorfendur. Janus Guðlaugsson og Albert Guðmundsson (ekki þó sá Albert Guðmundsson heldur yngri nafni hans) komu Íslandi tveimur mörkum yfir áður en núverandi þjálfari, keisarinn Fatih Terim, minnkaði muninn úr vítaspyrnu. Það dugði þó skammt því Teitur Þórðarson skoraði þriðja mark Íslands og þannig endaði leikurinn. Seinni leikurinn var spilaður á Laugardalsvellinum 9. september 1981. Þá mættu 4. 292 á völlinn og sáu Lárus Guðmunsson og Atla Eðvaldsson skora í 2-0 sigri. Þetta voru einu sigrar Íslands í þeirri undankeppni en liðið náði að gera 1-1 jafntefli við Tékkóslóvakíu á heimavelli og svo frægt 2-2 jafntefli í Wales þar sem spólvitlaus Ásgeir Sigurvinsson skoraði bæði mörk Íslands.
Ef gul spjöld skiptu einhverju máli í þessum leik þá væru Kolbeinn Sigþórs, Ragnar Sig og Ari Freyr á hættusvæði. En þau gera það ekki svo þeir eru það ekki. Viðureignin Þessar þjóðir hafa 8 sinnum áður mæst á fótboltavellinum og verður að segjast eins og er að Ísland er með ansi góða tölfræði gegn Tyrkjum í gegnum tíðina. Ísland hefur unnið 5 leiki, 2 hafa endað með jafntefli og aðeins 1 hefur tapast. Markatalan er 16-9. Í undankeppninni fyrir HM ‘82 lentu þessar þjóðir saman í riðli. Auk þeirra voru Sovétríkin, Tékkóslóvakía og Wales í riðlinum. Fyrri leikurinn fór fram í Tyrklandi þann 24.
Онлайн-трансляция матча Аргентина - Саудовская Аравия
Þessi undankeppni byrjaði ekkert sérstaklega vel hjá Tyrklandi. Tap í fyrstu tveimur leikjunum gegn Íslandi og Tékklandi, jafntefli í 3. leik gegn Lettum á útivelli og svo kom fyrsti sigurinn loks í nóvember 2014 þegar Tyrkir unnu Kazakhstan á heimavelli 3-1. 2015 hefur verið betra fyrir Tyrkina, þeir byrjuðu á að fara til Hollands í mars og gerðu þar jafntefli við heimamenn í leik þar sem Huntelaar jafnaði metin á 2. mínútu í uppbótartíma. Eftir það kom annar sigur gegn Kazakhstan í júní og annað jafntefli við Letta í september. Tyrkirnir fylgdu þeim sigri svo eftir með góðum 3-0 heimasigri á Hollendingum sama dag og Ísland tryggði sér þátttöku á EM. Í síðasta leik fór liðið svo til Tékklands og vann þar 2-0 sigur.
Heildarárangur Tyrkja í undankeppninni er því 15 stig, 4 sigrar, 3 jafntefli og 2 töp. Hafa skorað 13 mörk og fengið á sig 9. En ef við lítum bara á árangur liðsins á þessu ári þá er það ósigrað. Hafa unnið 3 leiki og gert 2 jafntefli, skorað 8 mörk og fengið á sig 2. Auk þess spilaði liðið 2 æfingarleiki og vann báða. Svo það er óhætt að segja að liðið sé í góðum gír þetta árið. Flestir leikmanna tyrkneska landsliðsins spila fyrir lið í heimalandinu.
Hannes hefur verið að spila glimrandi vel bæði með landsliði og félagsliði og ljóst að það verður ekki auðvelt verk að fylla hanskana hans. Vonum við að honum gangi vel í sinni endurhæfingu og geti farið að skutla sér eins og vindurinn fljótlega aftur. En við höfum nú þrjá aðra markmenn í hópnum. Íslandsmeistarinn Róbert Örn Óskarsson var kallaður inn í hópinn sem þriðji markvörður en líklegra verður þó að teljast að annað hvort Gunnleifur hinn síungi Gunnleifsson eða Ögmundur „augað“ Kristinsson taki sætið í byrjunarliðinu. Gunnleifur er fæddur árið 1975 og er því ekki neitt neitt gamall. Sumir myndu jafnvel segja að hann væri á besta aldri fyrir markmann.
Аргентина – Саудовская Аравия, 22 ноября 2022
Аргентина - Саудовская Аравия: смотреть онлайн 22